Tilkynning um aukaverkun vegna lyfs - náttúrulyfs - frá heilbrigðisstarfsfólki
Tilkynna ber:
- Allar alvarlegar aukaverkanir
- Allar óvæntar aukaverkanir sem grunur leikur á að tengist lyfinu, bæði alvarlegar og ekki, og ekki eru skráðar í samantekt á eiginleikum lyfs (SPC).
- Allar aukaverkanir, sem ekki teljast algengar samkvæmt samantekt á eiginleikum lyfs (SPC), þegar tíðni þeirra virðist aukast eða þær verða alvarlegri.
- Allar aukaverkanir þeirra lyfja sem sérstaklega er verið að fylgjast með nema þær sem teljast algengar í samantekt á eiginleikum lyfs (SPC). Þetta eru þau lyf sem hafa verið skemur á markaði en fimm ár, samkvæmt lyfjalista á heimasíðu Lyfjastofnunar.

